Dans frá Litháen

Glaðlegur dans sem er um leið skemmtileg saga um dýrin í sveitinni sem hjálpast að við að mala uppskeruna og baka úr henni. Þar sem lagið er frá Litháen er gaman fyrir börnin að fá útskýringu á hvað hin ýmsu orð í textanum merkja og tengja þau þannig við hreyfingarnar sem við gerum í dansinum. Síðan er reyndar ekkert mál fyrir þau að læra að syngja með - eins og sjá má hér.

Flugan býr til lummudeigið

Til að hjálpa börnunum til að skilja söguna í laginu fann ég myndir sem pössuðu og bjó til myndrenning sem við notum þegar við syngjum lagið og dönsum við það.

Dansinn

Laginu fylgja danshreyfingar sem er mjög einfaldar og skemmtilegar. Hér á síðunni má sjá tvö myndskeið af dansinum. Annað er nýtt og tekið upp í tengslum við hænuþema á deildinni en hitt er frá 2008 þegar við vorum að læra dansinn fyrst.

Ef þið vilja nota lagið og dansa í ykkar leikskóla er hljóðskrá hér:

Du gaideliai.mp3

Gamalt myndskeið

Það er gaman að segja frá því að gamla myndskeiðið varð mjög vinsælt og hefur verið skoðað 1,6 milljón sinnum síðan þá (sérstaklega auðvitað af fólki í Litháen).

Út af strangari persónuverndarreglum munu nýju myndskeiðin mín hins vegar ekki vera vistuð á Youtube og eru þar að auki bara aðgengileg gegnum Börn og tónlist, þannig að það er auðvitað ekki hægt að gera ráð fyrir jafn miklu áhorfi á þau :)

Síðast breytt
Síða stofnuð