Tröllabörn í kassa

Börn og tröll hafa það sameiginlegt að þau elska að skríða ofan í kassa og fela sig þar. En tröllin verða að hafa varan á og bíða eftir því að klukkan verði 12 á miðnætti áður en þau koma fram og bregða á leik, því að sólin getur breytt þeim í stein eins og við vitum vel. Hér erum við með risastóran kassa sem gerði leikinn mjög skemmtilegan en "kassinn" getur líka verið bara svæði á gólfinu.

Myndskeið

Við fórum í leikinn inni á deild með hópi þriggja ára barna. Ég kom með stóra kassann sem við höfðum áður notað sem eldgos, en að þessu sinni var hann lagður á hlið. Ég sagði börnunum að ég væri tröllamamman og spurði hvort þau vildu vera tröllabörnin mín. Þau yrðu þá að fara inn í kassann til að fela sig fyrir sólinni en klukkan 12 á miðnætti væri þeim óhætt að koma fram.

Samkennarinn minn, Gunnjón, sá um að spila á trommu og í myndskeiðinu má heyra hvernig hann notar mismunandi trommuritma til að styðja undir mismunandi hreyfingar barnanna. Börnin fengu síðan líka áhuga á að tromma og fóru að aðstoða hann og meira að segja að taka yfir leikinn í lokin :)

Leikur

Þessi leikur er eftir Lotte Kærså og má finna á DVD-disknum Leg, musik og bevægelse. Leikurinn er auðveldur og skemmtilegur og hægt að gera við hann ótal tilbrigði. Hentar best fyrir 2-4 ára börn.

Hér er lýsing í skrefum á hvernig leikurinn fer fram:

A) Þið eruð núna lítil tröllabörn sem eruð að fela ykkur niðri í kassa (grúfa á mottunni).

B) Nú kem ég og loka kössunum (Strjúka með hendinni eftir bakinu). / Má sleppa nema í fyrstu umferð.

C) Tröllabörnin liggja kyrr og hlusta. Hvað er það sem þau heyra? Það er hljóðið í stóru klukkunni í stofunni, sem segir "Tikk - takk" (allir segja það saman).

D) Allir segja saman: "Klukkan - er alveg - að verða - tólf!"

E) Þegar klukkan verður 12 þá stökkva tröllin upp úr kössunum og bregða á leik (telja upp að 12 saman: "Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm, sex, sjö, átta, níu, tíu, ellefu, tólf!" Kennarinn kallar: "Vaknið þið nú tröllabörn og byrjið að hopppa!" (eða þramma / læðast / dansa / skríða / o.s.frv.)

F) ...og tröllabörnin fara að hoppa, - trampa, - læðast, - dansa o.s.frv. Kennarinn spilar e.t.v. trommuritma, sem passar við.

G) Tröllabörnin fara aftur niður í kassann. Leikurinn heldur áfram eins lengi og börnin hafa gaman af.

Síðast breytt
Síða stofnuð