Lagið mitt um Álfadrottninguna er orðið ómissandi á þrettándanum og
þorranum hjá okkur á Urðarhóli. Til að lífga upp á flutninginn leik ég
álfadrottninguna og er með sérstakan hatt sem líkist þeim á myndinni.
Börnin lifa sig alltaf mjög vel inn í lagið og vita vel að
álfadrottningin er hættuleg og maður þarf að gæta sín á henni! Neðst á síðunni eru myndskeið sem sýna hvernig má nota lagið í dans.
Aðstoðarleikskólastjórinn á Urðarhóli gaf mér þessa fingrabrúðu og
spurði hvort ég gæti notað hana. Mér datt strax í hug álfadrottning og
fékk hugmyndina að þessu lagi sem maðurinn minn, Baldur, gerði svo
eftirfarandi texta við. Lagið skiptir milli 3/4 í erindunum og 4/4 í
viðlaginu.
Á álfaballi skal dansinn duna,
álfar og menn um gólfið bruna!
Já, komið nú krakkar og dansið við mig,
Komið og dansið við mig
Ó, nei, ó nei, ó nei,
við gerum það ei,
dansaðu við þig sjálfa!
Því mamma og pabbi segja að
við megum ekki dansa við álfa!
Á álfaballi skal dansa lengi,
það á við bæði um stúlkur og drengi!
Já komið nú krakkar og dansið við mig,
komið og dansið við mig!
Ó, nei, ó nei, ó nei
við gerum það ei,
dansaðu við þig sjálfa!
Því mamma og pabbi segja að
við megum ekki dansa við álfa!
Æ, syngjum nú saman og dönsum,
svo allir fari frá viti og sönsum!
Já komið nú krakkar og dansið við mig,
komið og dansið við mig!
Ó, nei, ó nei, ó nei,
við gerum það ei,
dansaðu við þig sjálfa!
Því mamma og pabbi segja að
við megum ekki dansa við álfa!
- Það er hættulegt að dansa við álfa!!