Jólasveinavísur

Frá Gimli

Texti

Segja vil ég sögu 
af sveinunum þeim, 
sem brugðu sér hér forðum 
á bæina heim.

Þeir uppi á fjöllum sáust, 
-eins og margur veit,- 
í langri halarófu 
á leið niður í sveit.

Grýla var þeirra móðir 
og gaf þeim tröllamjólk, 
en pabbinn Leppalúði, 
-það var leiðindafólk.

Þeir jólasveinar nefndust, 
-um jólin birtust þeir, 
og einn og einn þeir komu, 
en aldrei tveir og tveir.

Þeir voru þrettán 
þessir heiðursmenn, 
sem ekki vildu ónáða 
allir í senn

Að dyrunum þeir læddust 
og drógu lokuna úr. 
Og einna helst þeir leituðu 
í eldhús og búr.

Lævísir á svipinn 
þeir leyndust hér og þar, 
til óknyttanna vísir, 
ef enginn nærri var.

Og eins, þó einhver sæi, 
var ekki hikað við 
að hrekkja fólk - og trufla 
þess heimilisfrið.

Stekkjastaur kom fyrstur, 
stinnur eins og tré. 
Hann laumaðist í fjárhúsin 
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar, 
-þá varð þeim ekki um sel, 
því greyið hafði staurfætur, 
-það gekk nú ekki vel.

Giljagaur var annar, 
með gráa hausinn sinn. 
-Hann skreið ofan úr gili 
og skaust í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum 
og froðunni stal, 
meðan fjósakonan átti 
við fjósamanninn tal.

Stúfur hét sá þriðji, 
stubburinn sá. 
Hann krækti sér í pönnu, 
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu 
og hirti agnirnar, 
sem brunnu stundum fastar 
við barminn hér og þar.

Sá fjórði, Þvörusleikir, 
var fjarskalega mjór. 
Og ósköp varð hann glaður, 
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding 
og þvöruna greip, 
og hélt með báðum höndum, 
því hún var stundum sleip.

Sá fimmti Pottaskefill, 
var skrítið kuldastrá. 
-Þegar börnin fengu skófir 
hann barði dyrnar á.

Þau ruku’upp, til að gá að 
hvort gestur væri á ferð. 
Þá flýtti’ ann sér að pottinum 
og fékk sér góðan verð.

Sá sjötti Askasleikir, 
var alveg dæmalaus.- 
Hann fram undan rúmunum 
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana 
fyrir kött og hund, 
hann slunginn var að ná þeim 
og sleikja á ýmsa lund.

Sjöundi var Hurðaskellir, 
-sá var nokkuð klúr, 
ef fólkið vildi í rökkrinu 
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega 
hnugginn yfir því, 
þó harkalega marraði 
hjörunum í.

Skyrjarmur, sá áttundi, 
var skelfilegt naut. 
Hann hlemminn o’n af sánum 
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig 
og yfir matnum gein, 
uns stóð hann á blístri 
og stundi og hrein.

Níundi var Bjúgnakrækir, 
brögðóttur og snar. 
Hann hentist upp í rjáfrin 
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann 
í sóti og reyk 
og át þar hangið bjúga, 
sem engan sveik.

Tíundi var Gluggagægir, 
grályndur mann, 
sem laumaðist á skjáinn 
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni 
álitlegt að sjá, 
hann oftast nær seinna 
í það reyndi að ná.

Ellefti var Gáttaþefur 
-aldrei fékk sá kvef, 
og hafði þó svo hlálegt 
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði 
upp á heiðar fann, 
og léttur, eins og reykur, 
á lyktina rann.

Ketkrókur, sá tólfti, 
kunni á ýmsu lag.- 
Hann þrammaði í sveitina 
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu, 
þegar kostur var á. 
En stundum reyndist stuttur 
stauturinn hans þá.

Þrettándi var Kertasníkir, 
-þá var tíðin köld, 
ef ekki kom hann síðastur 
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin, 
sem brostu glöð og fín, 
og trítluðu um bæinn 
með tólgarkertin sín.

Á sjálfa jólanóttina, 
-sagan hermir frá,- 
á strák sínum þeir sátu 
og störðu ljósin á.

Svo tíndust þeir í burtu, 
-það tók þá frost og snjór. 
Á Þrettándanum síðasti 
sveinstaulinn fór.

Fyrir löngu á fjöllunum 
er fennt í þeirra slóð. 
-En minningarnar breytast, 
í myndir og ljóð.

Jóhannes úr Kötlum

Saga

Englarnir og 13 jólasveinar.

Einu sinni í desember voru þrír englar að fylgjast með lífinu á Íslandi. Þeir voru að athuga hvort allt væri í stakasta lagi með börnin á Íslandi.

Englarnir komu auga á Grýlu og Leppalúða í fjöllunum og með þeim var jólakötturinn, svo sáu þeir þrjár verur sem voru að leika sér í snjónum það voru Höttur,Flaska og Taska sem eru ein af börnum Grýlu og Leppalúða.

Englarnir spurðu hvar 13 jólasveina bræður þeirra væru og fengu að vita að þeir væru að fylgjast með hvort öll börn á Íslandi væru að haga sér vel, fara eftir fyrirmælum bæði foreldra og kennara og ef þau ruglast, hvort það gengi ekki bara betur næst, því bráðum færu þeir til byggða að gefa í skóinn.

Jólasveinarnir vildu helst ekki gefa kartöflur í skóinn því þá hefðu þeir minna af mat til að borða í vetur og þeir elskuðu bæði franskar kartöflur og venjulegar og þær vaxa bara á sumrin í moldinni. En þeim finnst líka gott að borða skyr, bjúgu, hangikjöt,laufabrauð og skófir.

Englarnir fullvissuðu Hött, Flösku og Tösku um að öll börn á Íslandi væru dugleg að fara eftir fyrirmælum og væru jákvæð, glöð og ætluðu ekki að taka uppáhalds mat jólasveinanna frá þeim.

Allir ætluðu að hjálpast að og passa upp á hvort annað, englar, jólasveinar, börn, foreldrar og kennarar.

Orð og hugtök

  • Forðum
  • Fennt
  • Halarófa
  • Heiðursmenn
  • Drógu lokuna úr þvara
  • Búr
  • Askur
  • Lævísir
  • klúr
  • Margur veit
  • dúr
  • Óknyttanna
  • hnuggin
  • Verða um sel
  • marraði hjörum í
  • Stinnur eins og tré
  • Hlemmur
  • Gil
  • sánum
  • Kostur var á
  • hámaði
  • Laumaðist á skjáinn
  • stóð á blístri
  • Krækti
  • hrein
  • Agnirnar
  • brögðóttur og snar
  • Barminn
  • rjáfur
  • Stauturinn
  • hnupla
  • Grályndur

Sjónrænt

Á myndinni efst á síðunni sjást nokkrir af þeim leikmunum sem við höfum notað í sambandi við flutninginn á vísunum.

Hreyfing og leikir

Í leikskólanum Gimli á „Útgarði“, elsta kjarna, eru vísurnar hans Jóhannesar úr Kötlum fluttar af öllum nemendum. Við þurfum alltaf að bæta við hlutverkum t.d. eru tveir jólakettir, 3 grýlubörn þau Höttur, Flaska og Taska og bætti ég við einu vísu handa þeim einnig eru þrír englar sem koma inn síðastir og mjög hátíðlegir í enda kvæðisins. Hver og einn nemandi teiknaði sitt hlutverk. Þessar vísur hafa verið leiknar af nemendum Útgarðs í fjölmörg ár og fyrir covid voru sýningarnar á Nesvöllum þar sem eldri borgarar og fjölskyldur nemenda voru áhorfendur en núna njóta bara nemendur leikskólans.

Samþætting

Sögur:

  • Leitin að jólakettinum eftir Oliver Þorsteins.
  • Jólasveinasaga eftir Bergljótu Arnalds.
  • Jólasveinarnir eftir Iðunni Steinsdóttur

Lög:

Jólasveinar einn og átta, Jólasveinar ganga um gólf, Ég sá mömmu kyssa jólasvein.

Síðast breytt
Síða stofnuð