„Droparnir“ er lítið sætt lag eftir Soffíu Vagnsdóttur sem er sérstaklega krúttlegt af því að börnin smella í góm til að segja dropahljóðið: „Dl dl dl dl“. Ég labbaði óvænt inn í listasmiðju og sá kostulega sjón þegar hópur 3ja ára barna var að leika sér með bráðnandi klaka í skærum litum. Kennarinn þeirra, Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir, var að syngja þetta litla dropalag með þeim á meðan þau rúlluðu klaka með matarlit fram og aftur á stórum bómullardúk á gólfinu. Alveg frábært að tengja saman lag og listsköpun á þennan hátt og það var greinilegt að börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega.
Droparnir
Dl, dl, dl, dl segja droparnir við pollinn x2
Og þeir stinga sér í kaf
og breyta pollinum í haf!
Dl, dl, dl, dl segja droparnir við grasið x2
Og það vex svo gjöfult, grænt,
og gerir landið okkar vænt.
Dl, dl, dl, dl segja droparnir við blómið x2
Og það breiðir blöðin sín
og brosir blíðlega til mín.
Dl, dl, dl, dl segja droparnir við gluggann x2
Inni sit ég, horfi‘ á þá,
renna niður eins og á.
Dl, dl, dl, dl segja droparnir við bálið x2
Og það slokknar smátt og smátt
og missir brátt sinn mikla mátt.
Lag og texti: Soffía Vagnsdóttir
Myndskeið
Jóhanna og starfssystur hennar Sierra og Kristjana hafa undanfarið boðið börnunum á deildinni upp á margs konar skemmtilegar upplifanir þar sem snjór, klaki og litur koma við sögu. Annað dæmi um það sést á síðunni 8 er snjókarl þar sem börnin fengu að lita snjókarla.
Trommur og Töfrateppi
Lagið „Droparnir“ gerði Soffia Vagnsdóttir fyrir allmörgum árum og er það frekar þekkt í leikskólaheiminum. Það er meðal annars að finna í Trommur og töfrateppi en það er frumsamið námsefni í tónlistaruppeldi eftir Soffíu sem kom út árið 2013. Námsefnið samanstendur af bók og geisladiskum. Á Youtube má finna flotta kynningu á innihaldi námsefnisins.
Tónlistarskólinn á Akureyri hefur gert nokkur myndskeið með undirspili og söngtexta. Ég hvet fólk til að skoða síðuna þeirra á YouTube. Hér er myndskeiðið sem þau gerðu fyrir þetta lag:
Tónlist og umhverfi
Nótur við lagið og hugmyndir um notkun á yngsta stigi í grunnskóla (en auðvelt að yfirfæra á leikskóla líka) má finna á bls. 26 í námsefninu Tónlist og umhverfi eftir Pétur Hafþór Jónsson og Þórdísi Sævardóttur (Menntamálastofnun 2015).