
Kínverskur drekadans
Þessi drekadans hefur næstum því róandi áhrif enda sýnir han langan kínverskan dreka liðast gengnum loftið þar sem hann eltir töfraperlu. Börnin bjuggu til drekann úr Pringles-dósum og voru mjög ánægð með útkomuna!
Drekadansinn okkar er undir innblæstri frá hefðbundnum kínverkum drekadansi sem sýndur er í sambandi við kínversku nýárshátíðina (en samkvæmt hinu hefðbundna kínverska dagatali er nýárið oftast í febrúar).
Til gamans má nefna að drekadans heitir 龍舞 (longwú) á kínversku :-)
Tónlistina fann ég gegnum iTunes. Lagið heitir "Dragon Dance" og er af plötunni "Dance of the Dragon - Chinese Festival Music" með Ameritz Sound Effects.
Aðrar síður með kínverskum drekum á Börn og tónlist:
- Xiao Sheng og töfraperlan - Endilega horfið á myndskeiðið, það er yndislegt!
- Dreka-stoppdans - einfalt og skemmtilegt!

Drekinn reynir að ná töfraperlunni

Drekadans

Dreki

Dreki