Hópur fimm ára barna vann þemavinnu um "Sögu af Suðurnesjum" (Jóhannes
úr Kötlum) þar sem strákur einn dettur í sjóinn. Við ímynduðum okkur at
við værum sjálf í neðansjávarheimi og börnin stungu upp á að þar væri
neðansjávarhljómsveit. Í framhaldi gerðu þau sína eigin
neðansjávartónlist og líka söngtexta um hljómsveitina. Hér má hlutsta á brot úr
upptökum barnanna sjálfra og einnig sjá myndskeið af ferlinu og af skuggaleikhússýningu barnanna.
Hljóðupptökur
Hér er hægt að hlusta á brot úr upptökum barnanna af
neðansjávartónlistinni. Sjá lýsingu á vinnuferlinu hér fyrir neðan og
myndskeið úr skuggaleikhússýning barnanna:
Neðansjávartónlistin var gerð með því að börnin fóru að rannsaka hljóðið
í alls konar dóti og drasli, úr plasti, málmi og tré. Síðan völdu þau
sér hvert sitt "hljoðfæri" tóku upp með hljóðnema beint í tölvu. Þau
tóku líka upp alls konar vatnshljóð (í flöskum, úr krana, í sturtuklefa
og klósetti) og nokkur venjuleg hljóðfæri eins og bjöllur og xýlófón. Brot úr þessu
ferli má sjá á fyrra myndskeiðinu neðar á síðunni.
Þessa neðansjávartónlist notuðum við síðan í leik með ljós og skugga í
hafinu þar sem hafmeyjar og hákarlar (sem þau höfðu teiknað, skreytt og
hengt á prik með bandi) léku aðalhlutverkið.
Ekki má gleyma að nefna kafarabúninginn, sem börnin gerðu úr pappakassa. Hann sést á myndinni hér að neðan.
Textasmíð
Börnin gerðu líka sinn eigin söngtexta um það sem þau upplifðu á
hafsbotni. Laglínan sem varð fyrir valinu var úr laginu um dýrin í
Afríku, því það er auðvelt að syngja hana og vegna þess að það er ekki
nauðsynlegt að línurnar rími. Við (kennararnir) bjuggum til fyrsta
erindið og svo létum við hugmyndaflug barnanna um afganginn.
Í neðansjávarheimi
Að synda um á hafsbotni
í neðansjávarheimi
er alveg eins og ævintýr
Þar er svo margt á sveimi
Oja oja a-ha-ha
Oja oja a-ha-ha
Er alveg eins og ævintýr
Þar er svo margt á sveimi
Hákarlinn hann svaf svo fast
að hann gat ekki vaknað
Við kölluðum og öskruðum
og dingluðum sporðinum í hann
Oja oja a-ha-ha
Oja oja a-ha-ha
Við kölluðum og öskruðum
og dingluðum sporðinum í hann
Núna kemur lúðrasveit
með hafmeyjum og fiskum
Krabbar spila' á tennurnar
og smella saman klónum
Oja oja a-ha-ha
Oja oja a-ha-ha
Krabbar spila' á tennurnar
og smella saman klónum
Kolkrabbinn spilar á píano
og lúður og trommur
Sæhestar og skjaldbökur
spila líka á lúður á trommur
Oja oja a-ha-ha
Oja oja a-ha-ha
Sæhestar og skjaldbökur
spila líka á lúður á trommur
Krókódíll á bassanum
og krossfiskur á fiðlu.
Marglytta á rafmagnsgítar
sæskrímsli á hörpu
Oja oja a-ha-ha
Oja oja a-ha-ha
Marglytta á rafmagnsgítar
sæskrímsli á hörpu
Textann samdi: Hákarla-og-hafmeyju-hópur (5 ára börn á Urðarhóli).
Myndskeið
Á þessu myndskeiði sjást svipmyndir úr ferlinu í þemavinnunni og úr skuggaleikhúsi barnanna:
Á síðara myndskeiðinu syngja börnin lagið með textanum sem þau sömdu:
Kennarar: Birte Harksen og Ingibjörg (Imma) Sveinsdóttir (12.11.08)