Sagan af Gutta
D A7
Sögu vil ég segja stutta.
D
sem að ég hef nýskeð frétt.
A7
Reyndar þekkið þið hann Gutta.
D A7 D
Það er alveg rétt.
A
Óþekkur er ætíð anginn sá,
út um bæinn stekkur hann
og hoppar til og frá.
D
Mömmu sinni unir aldrei hjá
eða gegnir pabba sínum.
Nei, nei, það er frá.
A7
Allan daginn út um bæinn
D
eilíf heyrast köll í þeim:
A7
Gutti, Gutti, Gutti, Gutti,
D A D
Gutti, komdu heim.
Andlitið er á þeim stutta
oft sem rennblautt moldarflag.
Mædd er orðin mamma hans Gutta,
mælir oft á dag:
Hvað varst þú að gera, Gutti minn ?
Geturðu aldrei skammast þín
að koma svona inn?
Réttast væri að flengja ræfilinn.
Reifstu svona buxurnar
og nýja jakkann þinn?
Þú skalt ekki þræta, Gutti,
Það er ekki nokkur vörn.
Almátturgur! en sú mæða
að eiga svona börn.
Gutti aldrei gegnir þessu,
grettir sig og bara hlær,
orðinn nærri að einni klessu
undir bíl í gær.
O´n af háum vegg í dag hann datt.
Drottinn minn! Og stutta nefið
það varð alveg flatt,
eins og pönnukaka. Er það satt?
Ójá, því er ver og miður,
þetta var svo bratt.
Nú er Gutta nefið snúið,
nú má hafa það á tröll.
Nú er kvæðið næstum búið,
nú er sagan öll.
Texti: Stefán Jónsson
Á vef Námsgagnastofnunar er líka að finna söngleik upp úr kvæðum Stefán Jónssonar, sem Harpa Jónsdóttir settir saman.
Lesið meira um Stefán Jónsson hérna.