
Stoppdans með myndum
Þessi stoppdans frá Asako í Fögrubrekku er mjög skemmtilegur. Eins og sést í myndskeiðinu neðar á síðunni byrjar hún á að sýna börnunum myndirnar sem verða notaðar í dansinum.
Það geta verið myndir af mörgu tagi, en í þessu tilfelli notar hún myndir af broskörlum sem eru í mismunandi skapi eða gera eitthvað, sem börnin eiga svo að herma eftir meðan tónlistin spilar. Þegar tónlistir stoppar eiga þau að snúa aftur á upphafsstaðinn og byrja á næstu mynd.
Myndskeiðið var tekið upp á Lundabóli í Garðabæ árið 2008.
Síðast breytt
Síða stofnuð