Notkunarskilmálar

Höfundarréttur

Frumsaminn texti á vef þessum er opinn samkvæmt notkunarleyfinu Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 3.0, en í því felst að afritun, deiling og breyting efnisins er öllum frjáls, með þeim takmörkunum að breytingar þurfa jafnframt að vera opnar, notkun í gróðaskyni er óleyfileg, og að ávallt þarf að vísa í upprunalega höfunda eða þennan vef.

Annað textaefni, svo sem söngtextar sem ekki eru frumsamdir af höfundum vefjarins, er ekki að jafnaði undir þessu opna notkunarleyfi heldur undir almennum ákvæðum höfundarréttar, og þarf því oft leyfi upphaflegra höfunda til þess að geta endurnýtt það.

Myndir og myndskeið sem sýna börn má alls ekki afrita eða sýna annars staðar en á vefnum Börn og tónlist án sérstaks leyfis frá forráðamönnum barnanna.

Annað myndefni á vefnum er mestmegnis undir sama Creative Commons leyfi og textinn. Þó geta verið einstakar teikningar (clipart) eða ljósmyndir af listaverkum barna sem krefjast leyfis frá þriðja aðila ef ætlunin er að endurbirta þær annars staðar.

Persónuupplýsingar

Myndskeið og myndir af börnum

Á vefnum eru mörg myndskeið og myndir sem sýna leikskólabörn. Ávallt liggur fyrir almennt samþykki fyrir myndbirtingu í slíkum tilvikum, sem viðkomandi leikskóli hefur fengið frá foreldrum. Ef forráðamenn hins vegar óska eftir að myndskeið eða myndefni með þeirra barni verði fjarlægt, mun það auðvitað verða gert. Slíkum óskum skal beint til Birte Harksen.

Nær öll nýrri myndskeið hér á vefnum eru hýst á Vimeo því að þar er auðveldara að takmarka aðgengi að þeim og hindra að þau finnist eftir öðrum leiðum en gegnum Börn og tónlist, eða að hægt sé að hlaða þeim niður. Þetta er gert til að tryggja að ekki sé farið út fyrir þau mörk sem foreldrar af eðlilegum ástæðum vilja setja fyrir myndbirtingar af börnum sínum. Af sömu ástæðu hafa mörg eldri myndskeið, sem áður voru á YouTube, verið flutt á Vimeo.

Vefkökur

Engar vefkökur eru notaðar beint af vefnum Börn og tónlist. Vefurinn skráir almennar upplýsingar um vefumferð en þetta reiðir sig ekki á vefkökur og upplýsingarnar eru ekki persónugreinanlegar.

Rétt er þó að vekja athygli á því að myndskeið sem hýst eru á Vimeo eru felld inn í margar síður hér á vefnum. Einnig eru fáeinar síður með myndskeiðum af YouTube. Spilun slíkra myndskeiða hefur óumflýjanlega í för með sér að vafri notandans sendir ýmsar upplýsingar til þessara miðla.